Jćja!
Allavega gangi ykkur vel í prófunum og hvað segi þið um litlu jól með kakói og smákökum??
Kv. Júlía
Bústađarferđ + Lćra
Það verður víst en masse bústaðarferð þessa eða næstu helgi. Spurningin er bara hvenær og hitt segir sig bara sjálft! Reynum nú að komast að niðurstöðu áður en "hinir" stela hugmyndinni og panta upp alla bústaðina.
Að sjálfsögðu verður skoðunakönnunin í notkun.
Heimildir:
Baldvinsdóttir, J. og Þrastarson, O. (2008). SUMARBÚSTAÐUR. Í O.Þrastarson (Ritstjóri), Hittingur..... (Nr. 126). Netið: Facebook.
Kv.
Bjerne.
Vísindaferđ í Landsbankann og eitthvađ öskuball
Næstkomandi föstudag kl: 17:00 verður vísó í Landsvirkjun (Háaleytisbraut 68) og grímuball (Sóltún 20) um kvöldið! Það er must að mæta í outfit í landsvirkjun og bannað að fara heim á milli og skipta um föt. Þetta á einnig við um fólk sem ætlar að sækja þar um vinnu í framtíðinni og vill ekki gera sig að fífli.
1500 Tjell fyrir Homo meðlimi
2000 Tjell fyrir Utangarðsmenn
P.S. Það er bannað að mæta sem fegurðardrottning með einhverju drasli í framan því Sigurrós er búin að panta Ungfrú Tjernobyl þemað.
P.P.S. Ef þú ætlar að mæta sem Andrés Önd eða Bangsímon þá verðuru að vera ber að neðan!


Fjör, Fjör & Fjör!
Kveðja,
Bjernemand
Róttćkar breytingar á ţessum steingerving!
Þetta er bara svo sniðug síða að við verðum að setja hana á fót aftur og það eru myndir þarna af einhverjum krökkum sem ég þekki varla lengur þær eru svo gamlar! Einhver rauðhærður maður þarna með mullet og 80's gleraugu í svörtum jakka á sloppy-inum. En já þetta getur verið svona miðjan okkar eins og í gamla daga og fyrst við eigum sona grand síðu af hverju ekki að nota hana?
Með bestu kveðju,
Bjarnfræðingurinn.
Stórborgarbúinn
Svo er verid ad skipta um hitakerfi í húsinu mínu, svo tad verda vinnukallar hjá mér næstu 2 vikurnar, úff, hlakka ekki til, byrja 8 á morgnana, veit ekki hversu mikid eg fæ ad sofa út. Plús hitinn verdur tekinn af í X langan tíma, og tad er skítakuldi hérna núna. Ég er sem betur fer med ullarsokkana og födurlandid med í för svo ég held ég lifi af :)
Annars kíkti ég í Kristjaníu í gærkveldi, tad var svona open mike night, geggjad gaman. sá samt aldrei tennan Mike, en ég held ég verdi fastagestur tarna á sunnudögum, hihi.
Í kvöld er ég svo ad fara í salsa, erum ad læra nýjan snúning, geggajd fjör.ég verd ordin ekkert smá gód tegar ég kem heim ;)
Annars hef ég ekkert mikid annad ad segja,
sakna ykkar allra samt rosa mikid og hlakka til ad sjá ykkur ad ári lidnu, eda um jólin, tar sem ad ég kem heim um jólin.
verid nú duglegri ad blogga, vid verdum ad lífga vid tessa sídu okkar!!!
Kossar og knús frá køben :)
LOKSINS LOKSINS
ÉG ER KOMIN MEÐ ÍBÚÐ !!!!
Jæja krakkar mínar , eftir mikla leit og mikið amstur er ég bara komin með samastað. Næsta árið á ég sem sé eftir að búa með stelpu sem að heitir Laura (yndilseg stelpa) í íbúðinni hennar. Herbergið mitt er stórt og sólríkt og íbúðin bara fín. Ég flyt inn á mánudaginn :)
Annars er ég líka byrjuð í skólanum´og þrátt fyrir SMÁ örðuleika með að rata rétta leið gengur allt rosa vel. Fór að djamma í gær með íslendingahóp sem er hér að læra lögfræði. Svaka stuð, Carlsberginn aðeins smakkaður og svona...
Annars er ég á leiðinni núna út í Nyhavn að fá mér öllara til að fagna íbúðinni í sólinni hérna og 20°C 8)
Bara svona smá fréttir , svo reyni ég að verða duglegri að blogga :)
Já og nýja símanr. mitt er 28 48 85 54 eða eins og ég vil segja þetta 28 4 88 55 4 hihi.... næstum eins og hreyfill bara :)
Farin út í sólina :)
Hittingur!
Það væri gaman ef við gætum hittst og fengið okkur að borða saman á Tapas, (jafnvel eihverja bjóra, 1-2...) Fellt tár, farið á trúnó, klárað ekkasogin og jafnvel eitthvað hlegið í gegnum tárin.
Birna kemur í bæinn 28. ágúst, og þar sem Arna er að fara þann 30. þá væri það alveg í síðasta lagi fyrir hana. Bjarni kemst því miður ekki þá,við getum þá jafnvel fundið annan dag, og jammað bara tvisvar sum okkar! aldrei of mikið af því.
Þið hin, endilega kommenteriði hvaða daga þið komist.
Kv. Kristínin
Sumariđ 2007
Langt síðan ég hef heyrt í ykkur öllum, sorrý en mér bara finnst svooooo leiðinlegt að tala í síma og er alls ekki nógu dugleg að nýta mér netmiðilinn til að halda sambandi. En ég ss var að setja myndir úr vélinni minni inn á tölvuna og hvað haldiði að hafa leynst þar?? Myndir úr einni bústaðarferðinni :o) bara flottar og djööö erum við skemmtileg og sæt!!! En allavega ég er sko meira en geim í útilegu, á reyndar ekkert allt of margar frí helgar í sumar og þær sem ég á eru sennilega orðnar nokkuð uppteknar en ég get oft fengið frí á virkum dögum ef það hentar e-m fleirum en mér :o) Er líka á leið í útilega á morgun, ætlum á Rauðasand og Látrabjarg, allir velkomnir ef e-m dettur í hug að vera spontainious og koma mér á óvart!! Svo er það brúðkaup á næstu helgi, Ögurball helgina þar á eftir sem reyndar er vinnuhelgi en ég ætla að skutlast bara á milli vinnutíma :o) Kristín þetta er sveitaballið góða sem ég talaði um, svo ef einhverjum langar á ekta sveitaball í pínu litlu félagsheimili í miðju Ísafjarðardjúpi þá væri geggjað að sjá ykkur þar. Svo er major vinnuhelgi með fullt af skipum svo ég missi af hinni árlegu skinny dipping ferð á Hornstrandir :o( ömó pömó!!! Og svo verslunarmannahelgin oooogggggg þá verður sko stuð, MÝRARBOLTINN!!!! Ætlum að verja titilinn og verða þrefaldir evrópumeistarar, þetta er sko dæmi sem enginn má missa af svo ef e-r hefur ekkert planað fyrir versló þá endilega kíkið í heimsókn. Svo reyndar gæti verið helgi sem ég kemst í útilegu svo ef e-r annar kemst þá, endilega látið vita. Væri sko geggjað til í að kíkja á Snæfellsnesið eða e-ð álíka. Þá á ég bara eftir 2 helgar í viðbót á Íslandi áður en ég held til Vancouver, önnur þeirra fer í vinnu og hin sennilegast í e-ð svaðalegt kveðjudjamm ;o) hehe. En ég ss er búin að kaupa miðann út, 31.ágúst vvvaaaahhhhhúúúúú get ekki beðið!!!!
Jæja þetta er nú orðið meira úber bloggið, en endilega bloggið e-ð svona og segið mér hvað þið eruð að gera og hvað ykkar plan er f restina á sumrinu!!
Og já eitt í viðbót!!! Endaði á hækjum eftir síðasta laugardag :o( Héldum staffa djamm í vinnunni eftir langan sólríkan dag á höfninni, ég eins og eldhnöttur í framan eftir einn bjór!!! Byrjuðum á golfi og bjór og fórum svo heim að grilla, en það er ekki gáfulegt að gera þetta í þessari röð þar sem allir voru orðnir svo mökk ölvaðir eftir langan, sólríkan, matarlausan dag og að fá svo bara beint bjór í mallan er ekki gott!! Nema hvað að þetta líka fína trampolín var í garðinum við hliðina, sem ég náttúrlega bara varð að prufa. Eftir að hafa sýnt alls kyns listir, heljarstökk, rassahopp og bara name it, ætlaði ég út af meðan aðrar héldu áfram að hoppa, en nei fóturinn beyglaðist undir mig og ég gat ekki stigið í hann það sem eftir lifði kvöldsins. En ætlaði náttúrlega ekki að hætta að djamma svo hoppaði á öðrum í um 4 tíma í viðbót :oS ekki gáfulegt!! Er laus við hækjurnar en fóturinn enn þrefaldur og frekar aumur. Ætla samt að komast í e-ar göngur í útilegunni á helginni :o)
Jæja over and out fóks!
! ! ! Partý ! ! !
Þá er komið að því . . .
Í tilefni af tvítugsafmælinu mínu mun glæsilegt partý eiga sér stað,
á Hverfisgötunni, föstudaginn 29. júní kl 20:56.
Þemað er ekki enn ákveðið, en hafiði búningana í startholunum! 
Pakkar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Nánar auglýst síðar..
Kristínin...
sumarfríiđ
ég er allavega að vinna á bráðamóttökunni í sumar þess á milli ætla ég að fara til BNA að sóla mig með familíunni og ferðast fullt innan Íslands. Langar að gera svo mikið.
Endilega látið vita ef ykkur langar í ferðalag í sumar, ég væri svo til, þ.e ef ég hef tíma, er frekar bizzí, en reyni að hliðra til ef að við ætlum eitthvað :)
Endilega verið nú dugleg að blogga í sumar :)
Sumarkveðja
Arna Björk ennþá mannari